Fara á efnissvæði

Minningarbekkur um Magnús og Bangsa

Nú á dögunum var Hjúkrunarheimilinu færður bekkur til minningar um þá félaga Magnús og kisann hans Bangsa, fyrrum íbúa á Hlíð.

Magnús Ágústsson var fæddur árið 1928 á Ólafsfirði. Hann lærði húsasmíði hjá föður sínum og byggingarverkfræði í Noregi. Magnús starfaði í mörg ár hjá Akureyrarbæ. Magnús var bæði notandi í dagþjálfun og síðar íbúi á Hlíð. Hann og kisinn hans Bangsi voru duglegir að fara út að ganga saman og könnuðust margir í hverfinu við þá félaga.  Það voru dætur hans þrjár sem færðu heimilinu þessa fallegu gjöf fyrir hönd systkinanna fimm. Bekkurinn er staðsettur á göngustígnum við Aspar- og Beykihlíð þar sem þeir félagar áttu heima. Hjúkrunarheimilið þakkar kærlega fyrir þessa góðu gjöf og vonast til þess að sem flestir sem eiga leið hjá nýti sér þennan fallega bekk.