Sjúkraþjálfun
Á Heilsuvernd Hjúkrunarheimilunum er veitt sjúkraþjálfun fyrir íbúa Hlíðar, Lögmannshlíðar og dagþjálfunargesti.
Í Hlíð og Lögmannshlíð eru vel útbúnir tækjasalir til þjálfunar. Þar starfa sjúkraþjálfarar og aðstoðarmenn. Sjúkraþjálfarar starfa alla daga í Hlíð og tvo daga í viku í Lögmannshlíð.
Markmið sjúkraþjálfunar er að:
- Þjálfa og viðhalda/bæta líkamlega færni fólks til sjálfshjálpar og til að létta umönnun.
- Endurhæfa eftir brot og sjúkdóma.
- Útvega hjálpartæki og veita leiðbeiningar um skófatnað o.fl.
- Vinna að forvörnum fyrir starfsfólk t.d. með fræðslu og sýnikennslu um góðar vinnustellingar og vinnuvernd.
Markviss þjálfun og hreyfing eykur lífsgæði fólks og er reynt að sjá til þess að sem flestir njóti hreyfingar sem oftast.
Boðið er upp á styrktaræfingar í tækjum, jafnvægisæfingar, liðkandi æfingar og göngu- og þolþjálfun með umsjón sjúkraþjálfara og aðstoðarmanns. Þeir sem þurfa sértæka meðferð fá einnig einstaklingsmeðferð.
Sjúkraþjálfarar í Hlíð bjóða upp á sjúkraþjálfun fyrir fólk sem kemur í dagþjálfun og alla þá sem þörf hafa á meðferð sjúkraþjálfara og vilja nýta sér hana.
Til að fá sjúkraþjálfun þarf fólk sem býr utan hjúkrunarheimilanna að fá beiðni hjá sínum lækni. Greiða þarf fyrir hluta af meðferðinni á móti Sjúkratryggingum Íslands.
Hafa samband
Hafðu samband ef þú ert með fyrirspurn eða óskar nánari upplýsinga um þjónustuna