Húsaleigubætur

Innheimta leigu og vanskil

Uppsögn leigusasmnings

Neyðartilfelli

Viðgerðarbeiðnir

Mikilvægi skriflegs leigusamnings

Skil á húsnæði, úttekt og þrif

Tryggingafé

Vátryggingar

Hagnýtar upplýsingar

Spurt og svarað

Vátryggingar

 

Leigusali kaupir bruna- og húseigendatryggingu fyrir íbúðina en leigutaki ber ábyrgð á eigin innbúi og heimilismunum. 

Vátryggingar leigusala (bruna- og húseigendatrygging) eru hjá vátryggingafélaginu VÍS og sér leigusali um þær tryggingar. Komi upp tjón ber leigjanda skylda til þess að gera allt sem hægt er til þess að takmarka tjónið auk þess að hafa án tafar samband við bæði tryggingafélagið VÍS (almennur sími 560-5000, neyðarnúmer utan opnunartíma 560-5070) sem og leigusala. 

SETJA INN NEYÐARNÚMER LEIGUSALA ÁSAMT LINK Á NEYÐAR/VIÐHALDSUNDIRSÍÐU

 

Spurt og svarað um tryggingar – 

Verð ég að kaupa heimilis- eða innbústryggingu?

Nei, það er ekki skylt en við mælum þó mjög með því að leigjendur tryggi sig gagnvart mögulegu tjóni með heimilis- eða innbústryggingu.

Hvað ef þvottavélin mín bilar og vatnsleki skemmir parketið í íbúðinni?

Flestar heimilis- og innbústryggingar ná til vatnsskemmda af völdum bilunar í hreinlætistækjum. Sért þú ekki með slíka tryggingu berð þú ábyrgðina gagnvart leigusala.

Ef kviknar í og innbúið brennur, hvaða rétt hef ég þá?

Brunatrygging leigusala á aðeins við um húseignina sjálfa sem og veggfastar innréttingar, ljós o.þ.h. Tryggingin tekur ekki til innbús leigjanda.


Tenglar á vátryggingafélög

VÍS

SJÓVÁ

TM

Vörður

Elísabet