Húsaleigubætur

Innheimta leigu og vanskil

Uppsögn leigusasmnings

Neyðartilfelli

Viðgerðarbeiðnir

Mikilvægi skriflegs leigusamnings

Skil á húsnæði, úttekt og þrif

Tryggingafé

Vátryggingar

Hagnýtar upplýsingar

Spurt og svarað

Tryggingafé

Áður en afhending leiguhúsnæðis fer fram er leigusala heimilt að óska eftir tryggingu frá leigjanda fyrir réttum efndum á leigusamningnum þ.e. fyrir leigugreiðslum og skaðabótum vegna tjóns á hinu leigða sem leigjandi ber ábyrgð á samkvæmt leigulögum.

Trygging getur verið með tvennu lagi:

1. Bankaábyrgð:

Í bankaábyrgð felst að banki ábyrgist með óafturkallanlegum hætti greiðslu fyrir leigu eða vegna vanefnda á samningi.  Þjónustu bankinn þinn getur gefið út þessa ábyrgð og tekur venjulega eithvert gjald fyrir það.
Vinsamlega snúið ykkur til  þjónustu banka ykkar til frekari upplýsinga

2. Tryggingafé greitt til leigusala.

Tryggingafé í vörslu leigusala skal vera verðtryggt en ber ekki vexti. Að loknum leigutíma skal leigusali segja til þess svo fljótt sem verða má hvort hann gerir kröfu í tryggingafé eða hefur uppi áskilnað um það. Ella skal hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt verðbótum án ástæðulauss dráttar. Leigusala er aldrei heimilt að halda tryggingafénu í sinni vörslu án þess að gera kröfu í það lengur en tvo mánuði frá skilum húsnæðisins.

Tryggingarfé sem og bankaábyrgð er leigusala heimilt að ráðstafa  til greiðslu á vangoldinni leigu, eða vegna vanefnda  bæði á leigutímanum og við lok leigutímans.

Fjárhæð eða hámark tryggingar eða ábyrgðar fer eftir samkomulagi aðila en tryggingarfé má eigi nema hærri fjárhæð en sem svarar þriggja mánaða húsaleigu.