Húsaleigubætur

Innheimta leigu og vanskil

Uppsögn leigusasmnings

Neyðartilfelli

Viðgerðarbeiðnir

Mikilvægi skriflegs leigusamnings

Skil á húsnæði, úttekt og þrif

Tryggingafé

Vátryggingar

Hagnýtar upplýsingar

Spurt og svarað

Innheimta leigu og vanskil

 

Gjalddagi leigu er 1. dag hvers mánaðar og fá leigjendur greiðsluseðil sendan fyrir mánaðamót. Eindagi er svo 5. dag hvers mánaðar, eftir eindaga reiknast dráttarvextir.

Við hvetjum leigjendur eindregið til þess að standa í skilum og bendum við á greiðsluþjónustur bankanna sem og stillingar í heimabönkum sem bjóða upp á sjálfvirkar greiðslur.

Sjái leigjandi fram á erfiðleika við að standa í skilum er mikilvægt að hafa samband við félagið eins fljótt og auðið er.  Vanskil á leigu jafngildir riftun á leigusamningi. 

Ferlið við innheimtu og vanskila má sjá hér að neðan og er innheimtuferlið í samræmi við gildandi lög og reglugerðir. (setja link á bakvið lög um innheimtulög 95/2008 og á bakvið  reglugerð um innheimtukostnað 37/2009)

 

Gjalddagi leigu er 1. hvers mánaðar

 Eindagi er 5. hvers mánaðar. Eftir eindaga reiknast dráttarvextir.

 

10 dögum eftir eindaga er send út vanskilatilkynning 

25 dögum eftir eindaga er send út lokaviðvörun

30 dögum eftir eindaga er krafa send í löginnheimtu

37 dögum eftir eindaga er farið fram á riftun á húsaleigusamningi

 

 

Reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar nr. 133 2010

Innheimtulög nr. 95 2008